Stína Gumm

Stína Gumm

25.03.2007 01:34:30 / stinastud

Ný mið

Hæ hæ...

Ætla að prófa http://www.stinagumm.blog.is

 kíkið í heimsókn


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 00:41:05 / stinastud

Product square

Takk fyrir nafnauppástungur... mjög "gagnlegar";)
En ég verð aðeins að tjá mig um þáttinn Vörutorgið! kræst... þar er ýmislegt á boðstólnum svo sem súkkulaðigosbrunnur sem er nauðsynlegur í gleðskapinn, candy floss vél sem er víst frábært að eiga á hverju heimili, þá þarf maður ekki að bíða eftir 17. júní til að fá sér svoleiðis og svo býsnin öll af líkamsræktartækjum til að brenna öllu þessu súkkulaði og candyflossi! allskyns bumbubanar og alhliðaþjálfar sem kosta einungis 27990.. eða eitthvað álíka... Þetta er svo sýnt á daginn og því mestmegnis heimavinnandi fólk sem horfir á þetta, konur í fæðingarorlofi, atvinnulausir eða öryrkjar;) sem hafa nú aldeilis efni á að panta sér bumbubana eða tvo! meiri vitleysan.... En jæja jæja.. bara mín skoðun það eru örugglega einhverjir sem hafa gaman að þessu...
Jæja ekki meir í bili
have a næs vonn

knús frá Stínu

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 20:17:44 / stinastud

Halló:D

Jæja er ekki bara komin febrúar? ó jú.. vá tíminn flýgur... sjúmmm.... Litla dúllan dafnar vel og er orðin soldil bolla;) með þessar líka fínu kinnar;) Það snýst flest allt um hana hjá okkur og dagurinn hleypur frá manni.. gefa að drekka, skipta um bleiur og fleira.. sem er reyndar mjög skemmtilegt.. og ég er bara heppin að eiga þessa yndislegu stelpu;) Við erum farnar að fara út að labba og ég er að reyna að fara eitthvað á hverjum degi;) andsk.. rigning.. alltaf samt en ómögulegt að láta rigningu stoppa sig hérna í Reykjavíkinni.. þá færi mar aldrei neitt..!
Nú er HM að líða undir lok (tölum ekki meira um það, strákarnir stóðu sig mjög vel að mínu mati) og næst er það júróvisjon.. alltaf eitthvað sem tekur við;) Loka keppnin er 17. febrúar.. sama dag og við ætlum að skíra. Aldeilis ljómandi góður dagur.. hehe En við erum 99% búin að ákveða nafnið á litlu en það er spurning um fleiri hugmyndir kæru lesendur.. bara þannig að mar gleymi engu og fái fleiri hugmyndir! endilega kommentið og komið með hugmyndir;) svo eru verðlaun ef einhver lendir á því nafni sem við höfum í huga! spennó spennó8)
Komma svo!!!!!!!!!!!! helgi framundan.. góða helgi evrívonn:D

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 21:11:04 / stinastud

Nýtt barn;)

Vá það er ýmislegt sem fylgir því að eignast sitt fyrsta barn;) við höfum verið afskaplega upptekin og erum nú fyrst að kynnast henni og hún okkur;) gengur bara fínt og hún er voða góð;) Við erum búin að opna síðu á barnalandi.. hauksdottir.barnaland.is.. ef þið viljið kíkja sendið okkur þá línu til að fá lykilorðið;)

Gleðilegt ár annars;) megi árið 2007 verða ykkur gæfu og gleðiríkt;)

Stína


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 03:50:24 / stinastud

Stúlka fædd

Hæ hæ

Kærar þakkir fyrir hamingjuóskirnar;) Það fæddist lítil stúlka í gær kl 17:52.. og hún er náttla bara YNDISLEG tæpar 16 merkur og 54 cm;)  með þónokkuð af dökku hári.. myndir og meira síðar;)

knús frá okkur öllum;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 01:59:07 / stinastud

Gleðilega hátíð

Sæl kæru vinir

Ekki er barnið fætt.. en ég hef fulla trú á að það komi á morgun eða hinn.. fórum upp á deild síðustu nótt og ég með mikla verki..og ég hélt að allt væri að gerast.. eeeen viti menn! svo fór bara allt að hægja á sér... og verkirnir koma núna bara með löngu millibili og við auðvitað send heim:S Ég var nú bara frekar svekkt.. ég verð nú að viðurkenna það... held ég bíði ekki fram á næsta ár.. kæmi mér verulega á óvart.. eeen sjáum til..! keep you posted!

En jólin eru auðvitað yndisleg.. og frábært að hitta fjölskyldu og vini.. grípa í spil, borða góðan mat oooog auðvitað opnað nokkra pakka.. ekki slæmt huh?.. love itt... hafið það gott..

knús frá Stínu.. (aka bjúgnakræki)


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 00:57:17 / stinastud

Greinarskil

aaarrrggg!!!... verð bara að tjá pirring minn.. geri greinaskil og bil í texta.. eins og hérna fyrir framan.. en þetta kemur bara allt í einni bendu... af hverju er þetta????


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 00:45:33 / stinastud

nó beibí

Hæ hó Ekkert barn komið.. eeen það gerist að öllum líkindum á næstu tveimur vikum;).. gæti þó dregist til 6. jan og það væri alveg innan tímamarka.. þannig að best að vera bara í rólegheitum.. takk fyrir góðar kveðjur;) En hvað er að veðrinu?... Kolklikkað veður og örugglega allt jólaskraut fokið út í veður og vind! ótrúlegt.. í gærkvöldi rölti ég.. já ég rölti niður í Munkaþverárstræti og þá var 10 stiga frost og þvílíkt jólalegt og fallegt veður.. í dag.. nokkrum klukkustundum síðar er 10 stiga hiti.. brjálað rok og hálka dauðans.. kræst! ég er ekki sátt... voonast svoo eftir hvítum jólum.. með fallegum jólasnjó sem svífur niður;) en ég skal láta vita um leið og eitthvað gerist.. eða Haukur... þannig að kíkið inn;) og endilega kommentið! knús frá Stínunni..

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 17:57:13 / stinastud

Kveðjur að norðan

Sælt veri fólkið Jæja nú erum við komin á norðurlandið.. jólastemmarinn í algleymingi! mjög mikið skreytt og svo hríðar passlega inn á milli.. allt til að auka áhrifin;) ljómandi alveg hreint.. Það fór nú ekki svo að barnið fæddist á Holtavörðuheiðinni eins og einhverjir voru búnir að spá.. sem betur fer og ferðin norður gekk bara mjög vel! En ég er mjög fegin að henni er lokið.. þetta er nú ekki það skemmtilegasta sem ég geri.. að sitja í bíl.. í lengri tíma (sérstaklega ekki upp á síðkastið).. eeen ég get svo sem ekki kvartað.. sofnaði eftir göngin og vissi ekki af mér fyrr en á Holtavörðuheiðinni.. aumingja Haukur.. en hann er svo sem orðinn vanur.. er farinn að hafa til ipodinn og svoleiðis sem hann smellir á sig um leið og ég fer að hrjóta.. sem er reyndar alltaf.. hmm.. well.. Í gær fórum við svo upp á FSA og skoðuðum fæðingardeildina.. og líst bara ljómandi vel á.. mjög afslappað og kósí .. miklu minna en í borginni og þegar við komum var bara ein kona á deildinni.. vona að það verði bara fáar þegar röðin kemur að mér.. krossa fingur... Ég vona að jólaundirbúningurinn gangi vel hjá öllum... er sjálf búin að öllu! heheheh LOL djók.. ekki að skapa mér óvinsældir.. en ég hef aldrei verið svona tímanlega! og það er rosalega góð tilfinning.. það er ótrúlegt hvað stundum er erfitt að njóta líðandi stundar.. nú er ég búin með jólaundirbúninginn og þá vil ég bara að jólin komi.. búin að gera reddí fyrir barnið og þá bíð ég bara eftir því.. í stað þess að njóta þess að vera hér og nú.. horfa á væmnar myndir í sjónvarpinu.. geta lagt mig þegar ég vil.. af hverju erum við alltaf farin að hugsa um næsta skref???.. nú ætla ég bara að njóta þess að fá alla þá athygli sem ég fæ.. allir mjög góðir og dekra við mig.. ég fæ ekkert að gera.. því að eftir nokkra daga verður það ekki ég sem fæ athyglina..hehe sem er nú reyndar líka mjög gott mál!.. eitthvað sem segir mér að barnið komi fyrir jól!.. risakveðja frá eyrinni góðu Stínan

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 20:47:58 / stinastud

desidesidesiber

Hellúúú...

Góðir dagar.. á þriðjudag fórum við í afmælismat til Sonju vinkonu.. þar var ekkert til sparað og miklar kræsingar á borðum:D Takk vinkona..

Svo í gær var basar mikill á Reykjó.. fullt af flottum munum og fullt af fólki.. gaman að því.. ég kláraði svo vinnuna... þannig að nú er ég formlega hætt að vinna á Reykjalundi.. skrýtið.. jæja..

Við Haukur fórum svo í bíó í gærkvöldi.. vorum komin upp í Smáralind rúmlega sjö.. jæja kannski nær hálfátta.. og ætluðum að byrja á því að fá okkur borgara á Burger King. .það gekk nú ekki betur en svo að við biðum og biðum og fengum matinn 10 mín í átta.. gleyptum í okkur.. og mér leið hörmulega..úffffff Svo sveifluðum við okkur upp í sal og rétt náðum sætum næst fremst.. og svoooo byrjaði myndin ekki fyrr en rúmlega hálf 9!!!!!!!! for kræíng át lád! ég var ekki sátt.. með hamborgara í hálsinum .. leið hreint ekki vel... og beið og beið.. og myndin var ekki búin fyrr en um 11.. já.. aldeilis bíóferð...  En myndin var Holiday.. sem er BARA SÆT OG SKEMMTILEG.. það fannst mér allavegana.. Haukur var ekki eins ánægður.. hmm skil það ekki..;) En stelpur.. skora á ykkur að fara á þessa mynd..

Við Bebba og Arna Kata.. fórum svo í leiðangur í dag.. og byrjuðum á Kringlunni.. vorum mættar fyrir 10 og það var alveg frábært.. mjög fáir og við náðum góðum hring fyrir kl 12..;) keyptum eitthvað af jólagjöfum og ýmislegu...Svo fórum við á basar iðjuþjálfunar á geðdeildinni til Sonju.. og skoðuðum úrvalið þar... Jæja við vorum ekki hættar,.. heldur héldum ótrauðar í Smáralind og þar var einnig tekinn góður hringur.. ég keypti fullt af barnadóti og er nú orðin nokkuð vel sett..;) Búin það þvo, pakka, strauja og kaupa flest það sem mér dettur í hug fyrir komu barnsins.. Nú er bara að bíða;)

En eftir þennan dag var ég orðin frekar slæpt og þreytt.. og er búin að sofa og liggja í sófanum síðan ég kom heim.. ekkert úthald...

:lol:

Bið að heilsa...


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 18:30:57 / stinastud

4. desember

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÓLÖF MÍN!!! Hef það bara gott... og er hérna heima.. enn í innibuxunum og hef það gott! Hlakka svo til að fara í ammæli á morgun til Sonju kellu;) Er að horfa á 6-7.. þar eru Felix og Guðrún að tala um ofbeldi.. og hversu mikið ofbeldi er beint að krökkum.. og ég er svo sammála því.. Við Hauksi fórum á Bond á laugardagskvöldið og þar er mikið um ofbeldi og dráp.. það voru nokkuð margir krakkar á þeirri mynd! Tjékkaði reyndar á því og það er ekkert aldurstakmark skráð.. eeeen hvað er í gangi.. ekki skrýtið að krakkar í dag eru alveg rugluð á hvað er raunverulegt og hvað ekki.. hvað er bíómynd eða tölvuleikur og hvað er daglegt líf. Daglegt líf án hasars og fullkomins útlits hljómar allavegana frekar boring.. og margir í tilvistarkreppu... jæja.. Fékk súkkulaðidagatal frá Hauki mínum.. sem er HIÐ BESTA MÁL og ég opna samviskusamlega einn glugga á hverjum morgni.. en málið er að myndin passar aldrei við súkkulaðið.. skrýtið.. þetta er nú kannski ekki stórmál þar sem súkkulaðið bragðast samt sem áður alveg ljómandi vel... Ég gaf Hauki líka dagatal.. Madagascar.. skohh... og hann er í sömu vandræðum.. veit ekkert hvort hann er að borða súkkulaðikrans eða sleða.. eða hvað.. en eitthvað hafa lika skolast til molarnir þannig að t.d í gær fékk hann engan mola... hehe greyið.. mér fannst það nú frekar fyndið:D múhahah.... hafið það sem best.. endilega kommentið.. það finnst mér svo gaman... knús frá Stínunni

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 18:29:29 / stinastud

hej hó

Laugardagur í dag..;) ágætir þessir laugardagar I must say:D Ég fór á litlu jól í vinnunni í gær og það var alveg hreint ljómandi gott. Julefrokost reyndar..þar sem flestar sem ég vinn með lærðu í Danmörku.. þetta er því ansi danskt allt saman.. síld, salat, pörusteik, lifrarkæfa með sveppum og beikoni.. og þessu auðvitað skolað niður með gammel dansk eða íslensku brennivíni! skál fyrir því.. Ég var nú bara í jólaölinu og hafði mig lítið frammi.. en skemmti mér konunglega;) Það var svo partý í gangi þegar ég kom heim.. hér á efri hæðinni.. úff.. þau eru aldeilis fyrir djammið.. en engar stunur í þetta skiptið.. en ekki nóg með það... partýið byrjaði svo AFTUR í morgun kl 7.. og var til rúmlega 9! úfffff.... frekar þreytandi.. aldeilis úthald.. og þar sem strákurinn er plötusnúður.. og spilar mjög harða tónlist heyrum við bara þungan takt.. pamm pamm pamm.. ja einhvern vegin svona... við erum að spá í að skella okkur á Bondarann í kveld;) þannig að hilsen.. Stínan

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 20:14:23 / stinastud

Jæja.. hætt að vinna;/

Blendnar tilfinningar... ER HÆTT AÐ VINNA... loksins.. en samt ekki.. skrýtið.. mjööög skrýtið..! Langar þótt ótrúlegt megi virðast að halda aðeins áfram og mun sakna samstarfsfólksins..eeen samt verður svo gott að hvíla sig;) Fór í skoðun í dag og blóðþrýstingurinn orðin ooof hár og ljósmóðirin  bara sagði mér að hætta ekki seinna en strax! Nú ligg ég hérna upp í sófa og reyni að slaka á... mjög gott .. Vildi bara deila þessu með ykkur... best að fara að horfa á eitthvað í imbakassanum...

Hafið það sem best.. og verið dugleg að kíkja hingað inn... ætla að reyna að vera dugleg að blogga þar sem ég verð bara að væbblast hérna heima..

over and out!8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 23:09:27 / stinastud

Tilraun tvöööööööö

ó men! var búin að blogga... eeeen það hvarf svo út í veður og vind! damn.. En það var nú samt hvorki mikið né merkilegt..

Hvað á að gera um helgina??? hlakka svooo til að gera ekki neitt.. njóta þess að vera hætt að vinna..(bara ÞRÍR) dagar eftir.. og hvíla mig.. Hugmyndir að einhverju sem hægt er að gera um helgina .. drífa sig í kringluna.. hlaupa þar um eins og hauslaus hæna og kaupa fullt af jólagjöfum.. það er hægt að baka sjö sortir.. föndra jólakort.. gera aðventukrans.. og svo margt margt fleira... það er líka hægt að taka því rólega.. jafnvel fara á kaffihús eða í bíó og gera ekki rassgat! það hljómar betur í mín eyru... einhverjir sem vilja koma með mér?.. ætla eiginlega ekkert að skreyta og ekkert að baka.. þar sem við förum norður 12. des og planið er að sníkja smákökur hjá ættingjum og vinum! Ég hef líka ansi góða afsökun þetta árið og hreinlega á að taka því rólega.. þannig að ég er að reyna að hafa ekki samviskubit yfir að vera ekki að þrífa allt hátt og lágt og taka þátt í skreytingum og látum sem eru að byrja allstaðar.. looovlí

Hverjir hafa séð Bond by the way.. hef bara heyrt góðar sögur... langar að fara að skella mér... En góðir dagar framundan.. Dagný og Arne kíkja við á morgun og ætla að gista áður en þau fara til Indlands.. í brúðkaup.. bara frábært.. once in a lifetime thing..! smá öfund.. og svo hitti ég Önnu Lilju á föstudaginn.. sem ákvað að breggða sér á frónið FRÁBÆRT:D

Takk takk annars fyrir komnentin.. loooovvveee itt... takk vinir!

knús frá Stínunni... have a nice one!


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 16:21:48 / stinastud

númmmmeer 12 þúsund!

Hádíhó.. vildi bara benda á að ég var gestur númmmer 12 þúsund á minni eigin síðu.. svo einkennilega vill til að það voru óvænt og leynileg verðlaun fyrir gest nr. 12 þús og nú fæ ég þau sjálf! hehe fer og kaupi mér eitthvað MÚHAHAHAH...

Ein vinnuvika eftir.. eeen hver er að telja.. best að fara gera sig reddí fyrir litlu jólin!

vonandi eigið þið gott laugardagskvöld í vændum:D

knús frá Stínunni


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
9. febrúar 2012